Sædís Rún til Vålerenga (Staðfest)

Sædís Rún Heiðarsdóttir.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Sædís Rún Heiðarsdóttir.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Landsliðskonan Sædís Rún Heiðarsdóttir hefur skrifað undir samning til 2026 við norska félagið Vålerenga. Hún kemur þangað eftir að hafa slegið í gegn með Stjörnunni.
Sædís Rún er 19 ára gömul en hún sprakk algjörlega út í Bestu deildinni í sumar. Hún átti frábært tímabil með Stjörnunni og vann sér inn sæti í A-landsliðinu í kjölfarið.
Hún hefur byrjað síðustu landsleiki og náð að festa sig í sessi í stöðu vinstri bakvarðar.
Sædís er uppalin hjá Snæfellsnesi og Víkingi Ólafsvík en hún gekk í raðir Stjörnunnar fyrir tímabilð 2020.
Það hefur verið mikill áhugi á henni erlendis og fór hún á reynslu til Englandsmeistara Chelsea. Núna hefur hún skrifað undir samning við Vålerenga, sem er eitt besta liðið í Noregi.
„Ég hef heyrt mjög góða hluti um félagið og ég kann mjög vel við það hvernig liðið vill spila fótbolta," segir Sædís Rún. „Ég tel að þetta sé fullkomið félag fyrir næsta skref hjá mér. Ég get ekki beðið eftir því að byrja."
Steinar Pedersen, yfirmaður fótboltamála hjá Vålerenga, segir að félagið sé að fá inn mjög spennandi leikmann.
„Sædís er leikmaður sem við höfum fylgst með lengi. Við erum ótrúlega ánægð að hún hafi valið Vålerenga. Hún er metnaðarfullur ungur leikmaður með mikla tækni og frábæran vinstri fót," segir Pedersen.
Vålerenga varð norskur meistari í ár og Ingibjörg Sigurðardóttir var fyrirliði liðsins, en hún verður ekki áfram hjá félaginu.