Spænskur markvörður til Hamars (Staðfest)

Mynd: Hamar

Mynd: Hamar
Hamar er búinn að krækja sér í markvörð sem hefur spilað fyrir CD Tortosa í spænsku utandeildinni undanfarin ár.
Sá heitir Gerard Tomás Iborra og er 25 ára Spánverji. Í Hveragerði mun hann kynnast Argentínumönnunum Guido Rancez og Roli Depedris sem léku lykilhlutverk síðasta sumar.
Hamar endaði með 24 stig úr 18 leikjum í nýrri 4. deild og setur stefnuna hærra á komandi leiktíð.
„Við getum ekki beðið eftir því að sjá hann á milli stanganna í sumar. Velkominn í Hamar Gerard!" segir í tilkynningu Hamars.