Fotbolti.net
21.01.21 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Svona er dagskráin hjá Man City og Liverpool áður en liðin mætast 7. febrúar

Manchester City er á rosalegu skriði.

Manchester City er á rosalegu skriði.

Canon

Mynd: Getty Images

Eins og oft áður þá náði Manchester City að finna leið til að vinna þegar liðið mætti Aston Villa í gær. City hefur verið á öflugu skriði og hélt marki sínu hreinu enn og aftur.

John Stones og Ruben Dias hafa myndað frábært miðvarðapar og þrátt fyrir meiðsli Kevin De Bruyne náði liðið að skora tvívegis gegn Villa.

Það verður hægara sagt en gert að stöðva City á þessu skriði en margir horfa til stórleiksins gegn Liverpool sem fram fer á Anfield þann 7. febrúar.

Hér má sjá leikjadagskrá þessara liða fram að þeim leik. Óhætt er að segja að City eigi nokkuð þægilegt prógramm ef svo má segja, það eru ansi mörg stig í sjónmáli.
Leikirnir framundan hjá Manchester City:
23. jan: Cheltenham (H) - FA Cup
26. jan: West Brom (Ú)
30. jan: Sheff Utd (H)
3. feb: Burnley (Ú)
7. feb: Liverpool (Ú)

Leikirnir framundan hjá Liverpool:
24. jan: Man Utd (Ú) - FA Cup
28. jan: Tottenham (Ú)
31. jan: West Ham (Ú)
3. feb: Brighton (H)
7. feb: Man City (H)
Svona er dagskráin hjá Man City og Liverpool áður en liðin mætast 7. febrúar
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.