Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 21. janúar 2023 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Lallana: Við munum spjara okkur án Trossard
Adam Lallana og Leandro Trossard
Adam Lallana og Leandro Trossard
Mynd: Getty Images
Adam Lallana, leikmaður Brighton, hefur engar áhyggjur af því að Leandro Trossard sé farinn til Arsenal, en hann segir að liðið eigi eftir að spjara sig.

Arsenal keypti Trossard fyrir 27 milljónir punda í gær en hann hefur verið með bestu mönnum Brighton síðustu ár.

Hann hefur komið að tíu mörkum í úrvalsdeildinni og stafar yfirleitt ógn af honum í fremstu víglínu.

Brighton hefur misst marga frábæra leikmenn en Lallana segir að félagið sé með nóg af góðum mönnum til að leysa þá af.

„Þú þarft bara að horfa á síðustu þrjá leikina hjá okkur án hans. Ég held að það hafi farið 5-1, 4-1 og 3-0. Eins og ég sagði þá geta leikmenn yfirgefið Brighton en við erum með nóg án þeirra.“

„Við vorum með nóg án Bissouma, Cucurella, White, Burn og svo þegar Maupay fór. Þannig ef Leo fer þá munum við spjara okkur og við erum nú þegar að gera nákvæmlega það,“
sagði Lallana
Athugasemdir
banner
banner
banner