Jesus gæti farið frá Arsenal - Möguleg stjóraskipti hjá Man Utd og Bayern - Dortmund vill halda Sancho
   fim 21. mars 2019 20:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sönnun þess að Bale kann ekki spænsku
Mynd: Getty Images
Gareth Bale og staða hans hjá Real Madrid hefur verið töluvert í umræðunni undanfarið. Umræðan hefur verið sú að hann kunni ekki spænsku og Thibaut Courtois sagði í viðtali á dögunum að Bale kæmi ekki með liðinu í kvöldmat þar sem að hann yrði að vera kominn í rúmið fyrir klukkan 11 á kvöldin.

Marcelo sagði í dag við Marca að hann sakni Cristiano Ronaldo vegna gæðanna sem hann bauð upp á en hann saknar líka Kiko Casilla, markmannsins sem færði sig um set til Leeds.

„Ég spjallaði alltaf við Kiko, hann var hliðin á mér í klefanum en núna er Bale hliðin á mér. Hann kann ekki spænsku og ég er ekki góður í ensku. Við heilsumst bara á einfaldan hátt en svo nær það ekkert lengra," sagði Marcelo.

Real Madrid birti á YouTube síðu sinni myndband þar sem voru töluð hin ýmsu tungumál. Luka Modric, leikmaður Real Madrid spurði Bale hvaða þrjá hluti hann væri alltaf með í fartösku sinni.

Bale svaraði honum að hann hefði ekki hugmynd um hvað hann hefði spurt sig að. Sjáðu myndbandið hér að neðan.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner