Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   sun 21. mars 2021 16:43
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Hvernig fékk Chiesa ekki vítaspyrnu?
Mynd: Getty Images
Ítalíumeistarar Juventus töpuðu óvænt heimaleik gegn Benevento í dag og eru tíu stigum á eftir toppliði Inter þegar ellefu umferðir eru eftir af tímabilinu.

Federico Chiesa hefur verið ansi öflugur í liði Juve undanfarið og er búinn að vinna sér inn fast sæti í byrjunarliðinu undir stjórn Andrea Pirlo.

Chiesa er þekktur fyrir að láta sig falla til jarðar auðveldlega og í dag kom þetta orðspor líklega í bakið á honum.

Hann féll til jarðar í vítateig Benevento eftir að varnarmaður nýliðanna lagðist í jörðina fyrir hlaupaleið Chiesa.

Chiesa nýtti sér varnarmistökin, fékk mikla snertingu og féll til jarðar en leikurinn látinn halda áfram.

Sjáðu atvikið
Athugasemdir
banner
banner