Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 21. apríl 2021 10:09
Elvar Geir Magnússon
Atletico Madrid og Inter draga sig úr Ofurdeildinni - Fjögur félög eftir
Atletico Madrid yfirgefur Ofurdeildaráætlunina.
Atletico Madrid yfirgefur Ofurdeildaráætlunina.
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid, topplið spænsku La Liga deildarinnar, og Inter, topplið ítölsku A-deildarinnar, hafa formlega dregið sig út úr áætlunum um Ofurdeildina.

Öll ensku félögin sex; Chelsea, Manchester City, Manchester United, Liverpool, Arsenal og Tottenham, drógu sig úr deildinni í gær.

Eftir að Atletico og Inter fara út úr áformunum eru aðeins fjögur félög eftir af þeim tólf sem upphaflega voru með. Það eru Barcelona, Real Madrid, Juventus og AC Milan.

„Stjórn félagsins fundaði í morgun og hefur formlega ákveðið að hætta samskiptum við Ofurdeildina. Það er mikilvægt fyrir félagið að samband allra í 'rojiblanca' fjölskyldunni sé gott, sérstaklega við stuðningsmenn," segir í yfirlýsingu Atletico Madrid.

Hvorki Atletico né Inter biðjast afsökunar í yfirlýsingum sínum.

Sjá einnig:
Agnelli segir að Ofurdeildin sé úr sögunni
Athugasemdir
banner
banner
banner