Liverpool berst við spænsku risana um Wharton - Nkunku orðaður við Liverpool - Rodrygo í enska boltann?
Alli Jói: Þessi kóngur frábær
Sandra María: Þetta var gott spark í rassinn
Óskar Smári: Gæðaleysi fram á við þegar leið á leikinn
Jóhann Kristinn: Var mögulega aðeins of pirraður
Bjarni Jó: Eigum að kála þessum leik
Donni: Vonandi það sem koma skal
John Andrews: Viljum spila öðruvísi og kannski er það að skaða okkur
FHL gleymdi búningunum fyrir austan - „Voru ekki lengi að finna búningasett fyrir okkur"
Úlfa Dís hetjan í Garðabæ: Sá einn á einn og hún stóð svolítið flatt
Pétur Rögnvalds: 5-4 er skemmtilegra en 1-0
Ívar Ingimars: Fólk á að borga extra fyrir þessa skemmtun
Davíð Smári: Ákvörðunin erfiðari eftir frammistöðuna gegn Blikum
Gunnar Heiðar: Héldum ekki áfram að gera það sem við erum góðir í
Jóhann Birnir: Meira svekktur með að það kom óðagot á okkur
Hemma Hreiðars bragur að myndast hjá HK - „Vilja æfa eins og skepnur"
Óli Íshólm: Eitthvað til að byggja ofan á en súrt var það
Þriðji markvörður Fjölnis í þremur leikjum - „Ekki algengt að tveir markmenn af þrem meiðist"
Árni Guðna: Þurfum að snúa þessum jafnteflum upp í sigra
De Jong spark fékk bara gult spjald „Hann fer bara með takkana í magann á honum"
Matti: Fyrri hálfleikurinn fer í algjört andleysi
   sun 21. apríl 2024 17:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Davíð Smári eftir fyrsta sigurinn: Þetta er ástæðan fyrir því að maður er í þessu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta er ástæðan fyrir því að maður er í þessu, að sigra leiki," sagði Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, eftir fyrsta sigur liðsins í efstu deild eftir sigur á KA í dag.


Lestu um leikinn: KA 0 -  1 Vestri

„Mér fannst þetta verðskuldaður sigur. Mér fannst við töluvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik. Mér fannst við pínu ragir í seinni hálfleik og vera með það í huga að stig væri þokkalegt í seinni hálfleik. Það sem stendur uppúr er skipulagið varnarlega, frammistaðan og orkan."

Davíð er ánægður með þróunina á spilamennsku liðsins milli leikja.

„Við þurfum að bæta okkur á milli leikja, mér finnst við hafa gert það. Varnarskipulagið mjög gott. Mér fannst við alltaf hættulegir þegar við unnum boltann og það veitir á gott," sagði Davíð Smári.

„Við erum komnir í þetta mót til að gera vel. Þegar við erum að spila á móti þessum stóru liðum verður erfitt að vinna okkur og það á að vera það."


Athugasemdir
banner