Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
   þri 21. apríl 2026 17:00
Kári Snorrason
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Kvenaboltinn
Ian Jeffs var tilkynntur sem nýr þjálfari Breiðablik í byrjun nóvember.
Ian Jeffs var tilkynntur sem nýr þjálfari Breiðablik í byrjun nóvember.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fagna sigri í meistarar meistaranna.
Fagna sigri í meistarar meistaranna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er virkilega spenntur fyrir föstudeginum. Við erum búin að æfa síðan í byrjun janúar, alltaf bíðandi eftir fyrsta leik. Nú erum við klár í þetta,“ sagði Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, á kynningarfundi Bestu deildar kvenna í hádeginu.

Breiðabliki var spáð toppsætinu í spá leikmanna, þjálfara og forráðamanna félagana í deildinni. Ian var spurður hvort að hann fyndi fyrir pressu.

„Við erum lið sem höfum unnið deildina síðustu tvö ár og urðum bikarmeistarar í fyrra, það verður alltaf pressa á okkur. Við erum nýtt þjálfarateymi og viljum halda liðinu áfram á sama stað. Þrátt fyrir að það hafa verið margar breytingar á leikmannahópnum þá held ég að við séum á mjög góðum stað. Við erum að reyna þróa þetta lið áfram: bæta okkur og gera hlutina betur.“

„Ég myndi ekki segja að þetta setji aukna pressu á okkur. Ég vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks. Það eru ákveðnar kröfur og væntingar sem fylgja því að vera þjálfari Breiðabliks,“
sagði Ian.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Besta deild kvenna - 1. umferð
föstudagur 24. apríl
19:15 Breiðablik-Þróttur R. (Kópavogsvöllur)
19:15 Víkingur R.-Stjarnan (Víkingsvöllur)

laugardagur 25. apríl
13:00 Fram-ÍBV (Lambhagavöllurinn)
16:00 Valur-Grindavík/Njarðvík (N1-völlurinn Hlíðarenda)
16:00 Þór/KA-FH (VÍS völlurinn)
Slapp
banner
banner
banner