
Rúnar Þór Sigurgeirsson var með tvo rétta þegar hann spáði í 2. umferð Lengjudeildarinnar.
Nú er komið að Mosfellingnum Axel Óskari Andréssyni sem leikur með Riga FC í Lettlandi að spá í 3. umferð deildarinnar. Fimm leikir eru á föstudag og einn á laugardag.
Nú er komið að Mosfellingnum Axel Óskari Andréssyni sem leikur með Riga FC í Lettlandi að spá í 3. umferð deildarinnar. Fimm leikir eru á föstudag og einn á laugardag.
Fram 3 - 1 Þór (Föstudag klukkan 18)
Þessi leikur fer 3-1. Framarar halda ótrauðir áfram, og spila í deild þeirra sterkustu að ári
Afturelding 4 - 1 ÍBV (Föstudag klukkan 18)
4-1 þetta er engin spurning. Allt í skrúfunni í eyjum og mæta þeir gröðum Mosfellingum. Maggi hendir í masterclass og með þeim afleiðingum að Moritz kaupir one way ticket fyrir Helga í Herjólf.
Þróttur R 0 - 2 Selfoss (Föstudag klukkan 19:15)
0-2 Gary opnar markareikninginn og Selfoss vinnur örruglega.
Víkingur Ó 1 - 3 Kórdrengir (Föstudag klukkan 19:15)
1-3 Kórdrengir komast í 0-2 áður en fjandmaður minn Ingibergur Landakort hendir í hnitmiðað langskot utan af velli.
Grindavík 1 - 1 Fjölnir (Föstudag klukkan 19:15)
1-1 tvö lið sem eru ekkert að grínast. Bæði lið virða stigið. Andri Freyr svikari úr Mosfellssveitinni fær boltann í hnakkadrambið eftir hornspyrnu Arnór Breka betur þekktur sem Júdas, og slysast til að skora.
Grótta 3 - 2 Vestri (Laugardag klukkan 14)
Hörkuleikur á nesinu. Gústi Gylfa veit hvað hann syngur og knýr fram sterkan sigur gegn flottu Vestra liði.
Fyrri spámenn:
Úlfur Blandon - 3 réttir
Rúnar Þór - 2 réttir
Stöðutaflan

L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir