Liverpool hefur áhuga á leikmanni Hoffenheim - Norskur bakvörður orðaður við Man Utd - Real Madrid horfir löngunaraugum til Rodri
Lárus Orri svekktur og lykilleikmenn mögulega missa af næsta leik
Aleksandar Linta um leikinn og Serbana utan hóps
Leikmenn hljóti að hafa meiri trú - „Verðum að ná þessu sæti“
Alli Jói: Ekki gleyma að þær eru Íslandsmeistarar
Ian Jeffs: Fannst þetta ekki jafn fyrri hálfleikur
Jón Óli um meiðsli og litla breidd: „Það situr gríðarleg þreyta í leikmönnum“
Edith stefnir á A-landsliðið
Matti Guðmunds svekktur: Vantar betri ákvörðunartökur á síðasta þriðjungi
Ingibjörg Lúcía bjargaði stigi: Ekkert viss um að margir komi hérna og sæki stig
Gylfi: Ætla óska eftir því að Ingibjörg Lúcía fari að skora flottari mörk en þetta
Óskar Smári: Á endanum þegar þú bankar svona fast þá hljóta dyrnar að opnast
Anton Ingi svekktur þrátt fyrir fyrsta stigið
FH svaraði áfallinu með stórsigri: Þessi leikur var fyrir Kötlu
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Brynjar Björn: Stór og sterkur og það er eitthvað sem vantaði
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
banner
   fim 21. maí 2026 21:58
Viktor Ingi Valgarðsson
Lárus Orri svekktur og lykilleikmenn mögulega missa af næsta leik
Lárus Orri Sigurðsson þjálfari ÍA
Lárus Orri Sigurðsson þjálfari ÍA
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

2-2 jafntefli var niðurstaðan þegar ÍA tók á móti botnliði ÍBV í 8.umferð Bestu Deildar karla.

Fjörugur leikur þar sem öll fjögur mörkin komu í seinni hálfleik en Skagamenn voru 2-0 yfir eftir sex mínútur í þeim seinni. Lárus Orri var skiljanlega vonsvikinn þegar náðist í viðtal við hann eftir leik.


Lestu um leikinn: ÍA 2 -  2 ÍBV

„Vonsvikinn og svekktur með frammistöðuna. Sérstaklega eftir að vera komnir 2-0 yfir eftir ekkert sérstakan leik þá er helvíti hart að geta ekki siglt þessu heim."

„Í fyrri hálfleik spilaðist leikurinn svolítið í gameplanið þeirra. Við komum grimmari í seinni og fannst besti hlutinn vera byrjunin á seinni hálfleik. Þrátt fyrir að komast í 2-0 leið mér í rauninni aldrei vel. Þannig það kom ekkert á óvænt að þeir setja hann þarna eftir aukaspyrnuna, momentumið komið til þeirra og þeir ná að jafna leikinn, þeir voru jafnvel líklegri til að vinna leikinn."

ÍA missti Böðvar fyrirliða sinn útaf snemma leiks og síðan rétt áður en ÍBV skoraði fyrsta markið sitt bað Viktor Jónsson sem var varafyrirliði um skiptingu vegna einhverja óþæginda. Einnig fór Haukur Haraldsson meiddur útaf.

„Vont að þurfa að gera svona skiptingar útaf meiðslum. Það er samt enginn afsökun við erum með fínasta hóp og ferskir menn sem koma í staðin. Verst að þurfa eyða skiptingum í þetta staðin fyrir að geta gert taktískar breytingar."

Jón Sölvi Símonarson er glænýr markvörður ÍA og kom í byrjarliðið i dag fyrir meiddan Árna Marinó.

„Jón Sölvi var flottur, stóð fyrir sínu og það er ekki hægt að kenna honum um nokkuð skapaðan hlut í dag. Kemur inn undir erfiðum kringumstæðum, erum mjög fegnir að hafa fengið hann."

Spurður hvort raunhæfara væri að fá undanþágu til að kalla Loga Mar tilbaka frá Kára heldur en að mega kaupa leikmann eftir gluggalok hafði Lárus þetta að segja: „Nei í rauninni ekki sko, ég held að Árni hafi ekki misst af leik í fjögur ár. Erum með Ísak á bekknum sem er mjög flottur markmaður en hinsvegar ekki tilbúin að stíga upp og vera aðalmarkmaður í tvo mánuði. Hefði léttilega getað coverað einn eða tvo leiki ef Árni hefði varið í bann eða minni meiðsli. Þannig ef þessi undanþágu regla átti ekki að gilda núna þá skil ég ekki hvenær hún ætti að gera það."

Framundan hjá ÍA er heimsókn í Kaplakirkan og leikur gegn FH.

„Byrjum í kvöld að horfa á þennan leik. Eigum helgar frí og þetta er búið að vera mikið törn þannig höldum okkur við það."

Spurning er hvort að Böðvar Böðvarsson, Viktor Jónsson og Haukur Haraldsson verða tilbúnir í þann leik.

„Ég bara veit það ekki, yrði hissa ef þeir myndu ná þeim leik og sama með Hauk."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner
banner