Juventus berst við Napoli um Sancho - Slot hefur áhuga á Guehi - Man Utd horfir til Ítalíu
Sandra á leið á EM: Rosa gott fyrir hausinn
Jóhann Kristinn: Formið á henni er ekkert eðlilegt
Áhyggjulaus þrátt fyrir að vera í fallsæti - „Ekki mitt að ákveða með mitt starf"
Arna Eiríks um EM hópinn: Ætla bara að vera hreinskilin, það var mjög svekkjandi
Kristján Guðmunds: Það hefðu verið ansi langar vikur
Guðni Eiríks: Þrjú töpuð stig
Sló leikjamet Stjörnunnar: „Að toppa Öddu er ekki leiðinlegt"
Berglind Björg ekki í landsliðshópnum: „Hafði ekkert heyrt frá Steina eða KSÍ“
Gústi Gylfa: Þetta var bara nokkuð vel spilaður fótboltaleikur
Gunnar Heiðar: Ég þoli ekki jafntefli
Óskar Smári: Alveg sammála þér og ég tek það algjörlega á mig
Árni Freyr: Galið að fara breyta þegar öll tölfræði er með okkur í hag
Hemmi Hreiðars: Heppnir að vera með tvo frábæra markmenn
Óli Kristjáns: Mikið hrós á þig fyrir að taka eftir henni
Jelena Tinna: Mjög leiðinlegt að missa hana
Blendnar tilfinningar hjá Hilmari: Harðasti Þróttari landsins á afmæli
Venni eftir stórt tap gegn Fjölni: Erum bara slegnir kaldir
Maggi: Það verður að bíða þangað til á næsta ári
Gunnar Már eftir fyrsta sigurinn: Er orðlaus að mörgu leyti
Vuk: Ætlum að vinna bikarinn og komast í Evrópu
   lau 21. júní 2025 17:28
Elíza Gígja Ómarsdóttir
Kristján Guðmunds: Það hefðu verið ansi langar vikur
Kvenaboltinn
Kristján Guðmundsson, annar þjálfara Vals
Kristján Guðmundsson, annar þjálfara Vals
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mjög ánægður með leikinn hjá leikmönnunum. Þær settu hann vel upp og þær framkvæmdu líka uppleggið mjög vel “ sagði Kristján Guðmundsson, annar þjálfara Vals, eftir 1-2 sigur gegn FH í Kaplakrika í dag. 


Lestu um leikinn: FH 1 -  2 Valur

Kristján segir uppleggið hafa verið það að leikmenn ættu að sína sínar bestu hliðar en það hefur gengið brösulega hjá Valsliðinu á þessari leiktíð. „Þær myndu nú aðeins sína fjaðrirnar og láta sér líða aðeins betur á vellinum og þær gerðu það. Með því að gera það þá framkvæmdu þær uppleggið mjög vel.“

Eins og áður segir hefur tímabilið ekki gengið neitt sérstaklega vel hjá Völsurum og því voru þetta kærkomin 3 stig svona rétt fyrir mánaðar langa EM pásu í deildinni. Þau hljóta að vera guðslifandi fegin að fara ekki inn í pásuna með 9 stig eftir 10 leiki: 

„Það er sko alveg hárrétt hjá þér. Það hefðu verið ansi langar vikur og sérstaklega þegar við erum að missa lykilleikmenn í landsliðsverkefnin og í burtu í einhvern tíma þá hefði verið svona erfiðara að leggja eitthvað upp fyrir seinni hlutann en þetta gefur okkur byr undir báða vængi og við förum léttari inn í þetta hlé.“

Viðtalið við Kristján má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan. 


Athugasemdir
banner
banner