Jones telur tíma sinn hjá Liverpool vera liðinn

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Enski miðjumaðurinn Curtis Jones telur tíma sínum hjá Liverpool lokið, en þetta segir ítalski miðillinn Gazzetta dello Sport.
Jones, sem er uppalinn hjá Liverpool, hefur verið sterklega orðaður við Inter á Ítalíu.
Ítalíumeistararnir eru aðeins reiðubúnir að greiða 20 milljónir evra fyrir miðjumanninn, en Liverpool vill fá 30 milljónir.
Gazzetta dello Sport segir að umboðsmenn Jones vinni hörðum höndum að því að koma honum frá Liverpool og að leikmaðurinn telji sjálfur að tími hans hjá félaginu sé liðinn.
Viðræður félaganna munu halda áfram á næstu vikum og vonast er til þess að lausn finnist.
Jones, sem er 25 ára gamall, hefur aldrei náð að festa sig í sessi í byrjunarliði Liverpool. Hann spilaði 49 leiki með liðinu á síðustu leiktíð en byrjaði aðeins tíu deildarleiki á miðjunni.