Liverpool bjartsýnt á að landa Diomande - Nunez kemur ekki

Yan Diomande er efstur á óskalista Liverpool

Mynd: EPA

Darwin Nunez er ekki að snúa aftur til Liverpool

Liverpool er bjartsýnt á að ganga frá kaupum á vængmanninum Yan Diomande frá RB Leipzig. Þetta segir enski blaðamaðurinn Ben Jacobs.

TENGT EFNI
Liverpool undirbýr annað tilboð í Diomande
Á dögunum lagði Liverpool fram 87 milljóna punda tilboð í Fílabeinsstrendinginn sem Leipzig hafnaði um hæl.
Fabrizio Romano sagði frá því að Liverpool hafi verið að þreifa fyrir sér og kanna hvort Leipzig væri reiðubúið að setjast að samningaborðinu.
Samkvæmt þýskum miðlum vill Leipzig fá 113 milljónir punda fyrir Diomande, en félögin gætu mæst á miðri leið og náð samkomulagi um kaupverð í kringum 105 milljónir punda.
Liverpool er sagt mjög bjartsýnt á að landa hinum 19 ára gamla Diomande, sem er einn heitasti bitinn á markaðnum, og er annað tilboðið á leiðinni. Evrópumeistarar Paris Saint-Germain hafa einnig áhuga en hafa ekki lagt fram tilboð til þessa.
Nunez kemur ekki
Úrúgvæski framherjinn Darwin Nunez hefur verið orðaður við endurkomu til Liverpool, en ekki er útlit fyrir að það verði að veruleika.
Áreiðanlegir miðlar í Úrúgvæ héldu því fram að félagaskiptin væru svo gott sem frágengin, en Romano hefur vísað þeim fregnum á bug. Það hefur Peter O'Rourke einnig gert, en hann hefur meðal annars starfað hjá Sky Sports og ESPN.
Nunez, sem spilaði með Liverpool frá 2022 til 2025, kom að 66 mörkum í 143 leikjum með enska félaginu áður en hann gekk í raðir Al Hilal á síðasta ári.
Hann er sagður reyna að losna undan samningi sínum hjá Al Hilal og gæti því verið fáanlegur í sumarglugganum.