Fotbolti.net
21.06.26 - 14:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Messi er Michael Jordan fótboltans"

„Messi er Michael Jordan fótboltans"
Canon

Mynd: EPA

Xavi, fyrrum leikmaður og stjóri Barcelona, skrifar áhugaverða grein á The Athletic, þar sem Lionel Messi er aðal umræðuefnið.

Xavi var tvítugur þegar Messi gekk til liðs við Barcelona árið 2000. Xavi hafði efasemdir um Messi þegar hann heyrði af honum fyrst en svo kom fyrsta æfingin.
„Ég man enn eftir fyrstu æfingunni. Hvernig hann rakti boltann, sendi og tengdist liðsfélögunum, hann gat allt. Ég trúði því ekki sem ég sá og ekki heldur aðrir leikmenn á borð við Carles Puyol, Victor Valdes, Deco og Ronaldinho. Við horfðum á hvorn annan og sögðum: 'Þetta er ekki eðlilegt'. Messi var bara 16 ára og var eiginlega besti leikmaðurinn í liðinu um leið," skrifaði Xavi.

„Ég segi gjarnan að hann sé Michael Jordan fótboltans. Það er ekki hægt að bera hann saman við einhvern. Hann hefur skarað fram úr leikmönnum fortíðarinnar vegna langrar reynslu sinnar: hann hefur verið sá besti síðustu 20 árin. Jafnvel núna, eftir allan þennan tíma, fer hann út og sýnir okkur það," skrifaði Xavi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.