Fotbolti.net
21.06.26 - 09:35
Brynjar Ingi Erluson

Pochettino jafnaði metið eftir aðeins tvo leiki

Pochettino jafnaði metið eftir aðeins tvo leiki
Canon

Mynd: EPA

Argentínumaðurinn Mauricio Pochettino fer frábærlega af stað með Bandaríkin á HM og jafnaði met forvera sinna, Bruce Arena og Bob Bradley, í 2-0 sigrinum á Ástralíu um helgina.
Bandaríska liðið lítur líflega út og er líklegt til alls, en það tryggði sér sæti í 32-liða úrslitum með sigri á Ástralíu.

Pochettino tók við Bandaríkjunum árið 2024 eftir að hafa áður stýrt Paris Saint-Germain, Tottenham, Chelsea, Southampton og Espanyol.

Bandaríkin gætu orðið spútniklið mótsins, en Pochettino er þegar farinn að elta met hjá landsliðinu.

Þetta var annar sigur Pochettino á HM og hefur hann þar með jafnað besta árangur þjálfara bandaríska landsliðsins. Bruce Arena, sem stýrði Bandaríkjunum í tvígang, fyrst frá 1998 til 2006 og aftur frá 2016 til 2017, vann aðeins tvo af átta leikjum sínum á HM. Robert Millar náði einnig í tvo sigra í þremur leikjum á fyrsta heimsmeistaramótinu árið 1930.

Nú mun hins vegar reyna á Pochettino, sem á enn eftir að vinna Evrópuþjóð síðan hann tók við. Bandaríkin hafa mætt fimm Evrópuþjóðum á þeim tíma og tapað öllum leikjunum.

Bandaríkin mæta Tyrklandi í lokaumferð D-riðils eftir tæpa viku, en Tyrkir eiga ekki lengur möguleika á að komast áfram eftir tvö óvænt töp gegn Ástralíu og Paragvæ.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.