Fotbolti.net
21.06.26 - 10:30
Brynjar Ingi Erluson

Rice og Rashford klárir gegn Gana - Saka líklega á bekknum

Declan Rice ætti að ná leiknum gegn Gana

Declan Rice ætti að ná leiknum gegn Gana

Canon

Mynd: EPA

Það eru góðar fréttir fyrir Englendinga fyrir leikinn gegn Gana í riðlakeppni HM á þriðjudag.
Declan Rice og Marcus Rashford virðast hafa hrist af sér smávægileg meiðsli og eiga að vera klárir í slaginn gegn Gana.

Guardian greinir frá því að leikmennirnir hafi verið tæpir síðustu daga, en báðir tóku fullan þátt í æfingu enska landsliðsins í gær.

Rice byrjaði fyrsta leik Englands á mótinu gegn Króatíu en var tekinn af velli þegar um tuttugu mínútur voru eftir. Rashford kom inn af bekknum í síðari hálfleik og setti mark sitt á leikinn með því að skora.

Staðan er hins vegar óljósari hjá Bukayo Saka. Enn er unnið að því að koma honum í stand, en hann æfði innandyra í gær og fór ekki út á gras með liðsfélögum sínum.

Það bendir til þess að Saka byrji aftrurá bekknum og núna í leik þar sem mikið er undir, en báðar þjóðir eiga möguleika á að tryggja sæti í 32-liða úrslitum eftir að hafa unnið í fyrstu umferðinni.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.