Fotbolti.net
21.07.22 - 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Darwin Nunez fór hamförum í öruggum sigri Liverpool

Darwin Nunez fór hamförum í öruggum sigri Liverpool
Canon

Mynd: EPA

Liverpool mætti RB Leipzig á heimavelli Leipzig í Þýskalandi í dag.

Liverpol telfdi fram sterku liði í byrjun leiks og Mohamed Salah skoraði fyrsta markið strax á 8. mínútu eftir sendingu frá Roberto Firmino.

Ekki voru fleiri mörk skoruð í fyrri hálfleik. Liverpool fékk vítaspyrnu strax í upphafi síðari hálfleiks en Darwin Nunez sem kom inná í í hléinu steig á punktinn.

Hann skoraði en markvörður Leipzig var í boltanum. Fyrsta mark Nunez komið en hann var alls ekki hættur hann bætti öðru marki við á 51. mínútu.

Hann skoraði síðan þrennu þegar hann lagði boltann í netið eftir undirbúning frá Harvey Elliott. Á lokamínútunni kom fimmta og síðasta mark leiksins.

Fjórða mark Nunez leit þá dagsins ljós eftir góðan undirbúning Fabio Carvalho.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.