Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 21. júlí 2022 09:53
Elvar Geir Magnússon
Lampard lætur leikmenn Everton heyra það eftir 4-0 tap
Frank Lampard, stjóri Everton.
Frank Lampard, stjóri Everton.
Mynd: EPA
Everton lék æfingaleik við Minnesota United í Bandaríkjunum og tapaði leiknum 4-0. Frank Lampard, stjóri Everton, lét sína leikmenn heyra það eftir útreiðina.

„Leikmenn verða að skilja það að við vorum í fallbaráttu stóran hluta síðasta tímabils. Það var ástæða fyrir því að við vorum á þessum stað í töflunni og ef við viljum forðast það að lenda aftur í þeirri stöðu þá verða leikmenn að vera betri, ég verð að vera betri," sagði Lampard.

Everton tapaði 2-0 fyrir Arsenal í fyrri æfingaleik sínum í Bandaríkjunum og mun mæta Blackpool og Dynamo Kiev í æfingaleikjum áður en alvaran hefst.

„Það er mikil vinna framundan. Mestu máli skiptir hvar við verðum eftir tvær og hálfa viku. Ef við ætlum að læra af þessum æfingaleikjum verða menn að skilja að þeir spiluðu mjög illa sem einstaklingar og sem lið, við vorum gjörsigraðir," sagði Lampard.
Athugasemdir
banner
banner
banner