Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 21. júlí 2022 13:12
Elvar Geir Magnússon
Lingard á leið til Forest og Mee í læknisskoðun hjá Brentford
Jesse Lingard.
Jesse Lingard.
Mynd: EPA
Breska ríkisútvarpið greinir frá því að Jesse Lingard sé á leið til nýliða Nottingham Forest á frjálsri sölu. Ekki er búið að ganga frá samningum en samkvæmt fréttum eru viðræður komnar langt á veg.

Þessi 29 ára leikmaður á 32 landsleiki fyrir England en hann yfirgaf Manchester United í lok júní eftir 20 ár hjá félaginu.

Hann hefur einnig verið orðaður við endurkomu í West Ham en hann lék fantavel hjá liðinu á lánssamningi 2020-21 tímabil og skoraði níu mörk í sextán byrjunarliðsleikjum í úrvalsdeildinni.

Þá hefur Brentford komist að samkomulagi við varnarmanninn Ben Mee samkvæmt Sky Sports og mun fara í læknisskoðun seinna í dag.

Mee var fyrirliði Burnley en yfirgaf félagið eftir ellefu ár hjá félaginu og gengur í raðir Brentford á frjálsri sölu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner