Dagur Ingi: Þannig að Grafarvogurinn sé stoltur af þessu liði
Auglýsing

Dagur Ingi Axelsson.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Dagur Ingi Axelsson.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Dagur Ingi Axelsson átti sannkallaðan stórleik þegar Fjölnir vann 5-1 sigur á Ægi í Lengjudeildinni í kvöld.
Dagur sýndi listir sínar á hægri kantinum og tókst honum að koma að fjórum mörkum. Hann átti þrjár stoðsendingar og náði í eitt víti.

„Ég gæti ekki verið mikið ánægðari með þetta. Liðið spilaði vel og ég náði að gefa margar stoðsendingar, sem ég á að gera sem kantmaður í þessu liði," sagði Dagur en liðið svaraði vel eftir vonbrigði í síðasta leik gegn Þrótti.
„Við áttum góðar samræður sem lið og við áttum góða æfingaviku, mikið tempó. Við komum vel gíraðir inn í þennan leik."
Dagur var spurður út í fyrsta markið sem Bjarni Gunnarsson skoraði, hvort hann hefði átt stoðsendinguna eða hvort Óliver Dagur Thorlacius hefði átt hana.
„Ég væri alveg til í að taka hana en Óliver vill kannski fá hana líka. Ég veit það ekki. Hann fer kannski smá í takkann hjá mér en Óliver á hana skilið. Við eigum hana saman."
Um markmið sín sagði Dagur: „Ég vil auðvitað komast upp í efstu deild þar sem þetta lið á heima, og halda okkur í efstu deild. Það er markmiðið mitt, að fá að vera í þessu liði og hjálpa því að komast upp. Og spila góðan og flottan fótbolta þannig að Grafarvogurinn sé stoltur af þessu liði."
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.