Fotbolti.net
21.07.23 - 23:01
Sverrir Örn Einarsson

Jón Þór: Að afskrifa einhver lið núna er fullsnemmt

Auglýsing
Jón Þór Hauksson

Jón Þór Hauksson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
„Mér fannst þessi leikur virkilega góður og virkilega öflugt að koma hingað og sækja þrjú stig. Við höfum ekkert alltaf gert það Skagamenn, þetta er erfiður útivöllur og Grindavík með gríðarlega öflugt lið.“ Sagði Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA um 2-1 útisigur Skagamanna á Grindavík í kvöld þegar hann mætti í viðtal við Fótbolta.net að leik loknum.
Skagamenn sem byrjuðu mótið helst til hægt hafa verið að sigurbraut að mestu að undanförnu og sitja í þriðja sæti deildarinnar sem gefur sæti í umspili að loknum 22 umferðum. Eru Jón Þór og Skagamenn fyrst og fremst að miða þangað nú þegar Afturelding virðist ætla að stinga af?

„Deildin er rétt rúmlega hálfnuð núna og að fara að afskrifa einhver lið núna er fullsnemmt. VIð einbeitum okkur bara að okkur sjálfum og okkar spilamennsku og höldum áfram að bæta hana.“

Gjaldkeri Skagamanna hefur átt góðar vikur að undanförnu og ungir Skagamenn verið seldir erlendis auk þess sem að ÍA fékk ansi drjúga peningaupphæð við söluna á Hákoni Arnari Haraldssyni til Lille á dögunum. Jón Þór ræddi þau málefni aðeins.

„Við erum búnir að selja tvo unga og bráðefnilega stráka núna á stuttum tíma Daníel til Nordsjæland og Hauk núna til Lille sem er bara frábært fyrir okkur og partur af stefnu félagsins. Við óskum þeim til hamingju með það og það verður mjög gaman að fylgjast með þeirra þróun áfram.“

Sagði Jón Þór en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.