Fotbolti.net
21.08.13 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Lokomotiv Moskva fær Lassana Diarra (Staðfest)

Lokomotiv Moskva fær Lassana Diarra (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Lokomotiv Moskva hefur keypt miðjumanninn Lassana Diarra frá Anzhi Makhachkala.

Þessi 28 ára gamli Frakki kom til Anzhi í fyrra en hann hefur nú skrifað undir þriggja ára samning við Lokomotiv.
Diarra er sjötti leikmaðurinn sem yfirgefur Anzhi á síðustu tveimur vikum en eigandi félagsins hefur ákveðið að draga saman fjármuni sem hann mun eyða í leikmenn.

Willian er einnig á förum frá Anzhi til Tottenham og þá er líklegt að Samuel Eto´o fari frá félaginu á næstunni.

Heimild: Goal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.