Fotbolti.net
21.08.20 - 22:01
Sverrir Örn Einarsson

Atli Sveinn: Sköpuðum fullt af færum

Auglýsing
Atli Sveinn Þórarinsson þjálfari Fylkis

Atli Sveinn Þórarinsson þjálfari Fylkis

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er ekki sáttur við úrslitin. Spilamennskan var hrikalega góð. Við sköpuðum fullt af færum og fullt af tækifærum til að búa til færi sem við hefðum getað farið betur með þannig að ég hefði bara viljað vinna þetta," sagði Atli Sveinn Þórarinsson, annar þjáfara Fylkis, um leik sinna manna í kvöld er Fylkir gerði 1-1 jafntefli við Stjörnuna í Árbæ.
Fylkismenn réðu ferðinni framan af í síðari hálfleik og sköpuðu sér nokkur álitleg færi til að skora. Þau færi nýttust þó ekki og áður en hálfleikurinn var úti hafði Stjarnan náð forystunni,

„Ef maður tekur ekki sénsanna á móti liði eins og Stjörnunni þá koma þeir alltaf til baka og þeir gerðu það en við komum svo til baka í seinni hálfleik og bara mikið hrós á strákanna fyrir það. Það er auðvelt að setja skottið á milli lappana og gefast upp en það var aldrei til umræðu í dag.“

Einhverjir vldu meina að Fylkismenn hefðu átt að fá vítaspynu í síðari hálfleik þegar boltinn fór í hönd Stjörnumanns í teignum. Fréttaritari sá ekki umrætt atvik vegna veðurblíðunar í Árbænum en um atvikið sagði Atli.

„Ég þarf bara að skoða það betur. Alltaf þetta sígilda bolti í hönd eða hönd í bolta eða hvernig það er en mér fannst domarinn bara vera með góð tök á leiknum og gera þetta mjög vel í frekar erfiðum leik að dæma.“

Sagði Atli Sveinn en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.