Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 21. september 2020 13:00
Magnús Már Einarsson
Leicester í viðræðum um kaup á Fofana
Leicester er í viðræðum við franska félagið St Etienne um kaup á miðverðinum Wesley Fofana.

Hinn 19 ára gamli Fofana var ekki í leikmannahópi St Etienne gegn Nantes í gær þar sem framtíð hans er í óvissu.

Fofana hefur sjálfur sagt á samfélagsmiðlum að hann vilji ganga í raðir Leicester.

Viðræður milli félaganna er í gangi en upphaflega setti St Etienne 25 milljóna punda verðmiða á leikmanninn.

Leicester vill ekki borga svo háa fjárhæð og möguleiki er á að niðurstaðan verði að Fofana komi á láni út tímabilið til að byrja með, áður en kaup verða skoðuð næsta sumar.
Athugasemdir
banner
banner