Lucas Vazquez, kantmaður Real Madrid, verður frá keppni næstu vikurnar eftir að hafa meiðst á æfingu í ræktinni í gær.
Vazquez missti þungt lóð ofan á tána á sér með þeim afleiðingum að stóra táin hans brotnaði.
Allt bendir til þess að Vazquez verði frá keppni í 4-6 vikur.
Vazquez missti þungt lóð ofan á tána á sér með þeim afleiðingum að stóra táin hans brotnaði.
Allt bendir til þess að Vazquez verði frá keppni í 4-6 vikur.
Um er að ræða áfall fyrir Real Madrid því þétt leikjaprógram er framundan hjá liðinu næstu vikurnar.
Vazquez missir meðal annars líklega af leiknum gegn Barcelona þann 18. desember.
Athugasemdir