Fotbolti.net
21.12.23 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ari að verða samningslaus - „Er búinn að vera í einhverjum viðræðum"

Auglýsing
Þá þurfti ég bara að leggja harðar að mér og reyna gera mitt besta

Þá þurfti ég bara að leggja harðar að mér og reyna gera mitt besta

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Árbæingurinn Ari Leifsson er að renna út á samningi eftir að hafa leikið með norska liðinu Strömsgodset undanfarin fjögur tímabil. Norska félagið keypti hann frá Fylki fyrir tímabilið 2020.

Ari er 25 ára gamall og á hann að baki fjóra A-landsleiki. Hann ræddi við Fótbolta.net um tímabilið 2023 og ýmislegt annað.
„Þetta var smá upp og niður hjá okkur, byrjaði smá hægt, svo kom mjög góður kafli, ég dett aðeins út og kem svo aftur inn í liðið. Endaspretturinn var mjög góður, endum í 7. sæti sem er besti árangurinn síðan ég kom. Það var góður stígandi í þessu," sagði Ari.

Er eitthvað sem gerist þegar Ari dettur út úr liðinu?

„Það var meiðslatengt. Ég fann svo um mitt tímabil að ég var ekki beint í uppáhaldi hjá þjálfaranum. Þá þurfti ég bara að leggja harðar að mér og reyna gera mitt besta."

„Tímabilið 2021 var líka mjög gott tímabil hjá mér. Ég hafði ekki spilað mikið á tímabilinu þar á undan, en núna var kannski meiri stöðugleiki í þessu. Maður er búinn að sýna það vel að maður á heima á þessu stigi. Það er búið að ganga mjög vel."


Strömsgodset spilar með þrjá miðverði. Hentar það vel?

„Já, en það tók smá tíma að aðlagast því, líka fyrir allt liðið. Klúbburinn var þekktur fyrir 4-3-3, mikinn hápressufótbolta og sótt á mörgum mönnum. Þetta voru svolítil viðbrigði að skipta yfir í þriggja manna. Til að byrja með var smá ryð en núna er þetta orðið helvíti fínt og ég kann vel við mig í þessu kerfi líka."

Svaka stökk á sínum tíma
Er allt annað að spila í Noregi heldur en á Íslandi?

„Já, sérstaklega fyrst. Núna eru komin fjögur ár síðan ég spilaði á Íslandi og ég held, vona og geri ráð fyrir að deildin (á Íslandi) sé komin á betri stað. Þetta var svaka stökk á sínum tíma, maður fann gífurlegan mun og ég hef heyrt það frá Loga sem kom núna til félagsins, hann fann mikinn mun. Munurinn er sérstaklega í líkamlega þættinum. Þetta er klárt skref upp á við frá íslensku deildinni."

„Það var snilld að fá Loga inn í hópinn. Hann er algjör öðlingur og gaman að fá svona vitleysing með sér. Hann er mjög léttur."


Góð stemning á vellinum
Eru margir áhorfendur hjá Strömsgodset og eru þeir að láta menn heyra það þegar illa gengur?

„Menn eru lúmskt fljótir að rakka menn niður. Það er mikil hefð þarna. Eftir covid þá tók smá tíma að fá aftur fólk á völlinn. Völlurinn tekur um 8900 manns og að meðaltali eru um 5500-6000 í stúkunni. Það er góð stemning þarna og mjög gaman að spila fyrir framan þessa stuðningsmenn."

Bestu liðin hörkugóð
Bodö/Glimt hefur unnið deildina þrisvar af síðustu fjórum skiptum. Er liðið það langbesta í Noregi?

„Allavega síðan ég kom, þá hafa þeir sýnt það. Molde hefur líka gert flotta hluti, bæði þessi lið hafa átt góða leiki í Evrópu. Ég held að norska deildin sé í fyrsta sæti af skandinavísku deildunum. Þetta eru hörkugóð lið."

Opinn fyrir flestu
Samningur Ara rennur út í lok árs. Er hann að skoða eitthvað í kringum sig?

„Maður er svona að vega og meta. Ég er búinn að vera í einhverjum viðræðum við klúbbinn. Núna er ég kominn heim í frí, ætla sjá aðeins til og taka minn tíma."

„Maður er opinn fyrir flestu og það væri gaman að upplifa eitthvað nýtt. En annars er rosagott líka að vera í Drammen. Ég er mjög ánægður þar og það stendur til boða að vera þar áfram."


Er vitað af áhuga annarra félaga?

„Það eru búnar að vera einhverjar þreifingar hér og þar. Núna er maður að láta umboðsmanninn sjá um þetta, aðeins að ná áttum, kúpla sig aðeins niður og byrja undirbúa sig fyrir framhaldið."

„Ég er ekkert að stressa mig á þessu, það þýðir ekkert. Þetta má samt ekki taka of langan tíma, en maður tekur bara einn dag í einu,"
sagði Ari.

Hann er í lok viðtalsins, sem má sjá í spilaranum efst, spurður út í Fylki og landsliðið.
Á landsliðsæfingu sumarið 2022.

Á landsliðsæfingu sumarið 2022.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gaman að fá svona vitleysing með sér

Gaman að fá svona vitleysing með sér

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Í leik með Fylki 2019.

Í leik með Fylki 2019.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.