Fotbolti.net
21.12.23 - 19:38
Ívan Guðjón Baldursson

Fylkir fær varnarmann úr efstu deild í Bandaríkjunum (Staðfest)

Fylkir fær varnarmann úr efstu deild í Bandaríkjunum (Staðfest)
Canon

Mynd: Fylkir

Hertz
Knattspyrnudeild Fylkis var að krækja sér í öflugan varnarmann fyrir komandi tímabil þar sem Kayla Bruster er búin að skrifa undir eins árs samning.
Kayla er 24 ára gömul og kemur úr röðum San Diego Waves í efstu deild kvenna í Bandaríkjunum.

Kayla var gríðarlega öflug í háskólaboltanum þar sem hún spilaði lykilhlutverk með sterku liði University of Georgia og var fyrirliði.

Eftir háskólann var hún valin af San Diego Waves í nýliðavalinu, en fékk ekki spiltíma í einni af sterkustu deildum heims. Búist er við að Kayla flytji í Árbæinn eftir áramót.

„Mikil eftirvænting er í Árbænum eftir komandi sumri og með okkar nýjustu viðbót eykst spennan frekar. Það verður gríðarlega áhugavert að sjá Kayla spreyta sig í bestu deildinni með okkar unga og efnilega Fylkisliði," segir í tilkynningu frá Fylki.

Fylkir endaði í öðru sæti Lengjudeildarinnar í sumar og mun því spila í Bestu deildinni á næsta ári.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.