Fotbolti.net
21.12.23 - 18:25
Ívan Guðjón Baldursson

Meiddur Kimpembe framlengir við PSG (Staðfest)

Meiddur Kimpembe framlengir við PSG (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Miðvörðurinn Presnel Kimpembe er búinn að framlengja samning sinn við franska stórveldið Paris Saint-Germain um tvö ár, eða til sumarsins 2026.
Gamli samningurinn hefði runnið út næsta sumar og var framtíð Kimpembe óljós eftir ósætti við PSG.

Það ósætti hefur verið leyst og fær þessi 28 ára gamli Frakki nýjan samning að launum, þrátt fyrir að vera fjarri góðu gamni vegna meiðsla.

Kimpembe hefur verið meira og minna meiddur síðasta árið og er þessa stundina að jafna sig eftir krossbandsslit, en lenti einnig í því að slíta hásin.

Miðvörðurinn fer í aðgerð á næstu dögum sem gæti gert það að verkum að hann verði frá keppni út tímabilið. Hann á þó möguleika á því að ná lokasprettinum ef allt gengur upp, og gæti reynt að vinna sér sæti í franska landsliðinu fyrir EM næsta sumar.

Kimpembe er uppalinn hjá PSG og á 236 keppnisleiki að baki fyrir félagið. Hann á 28 landsleiki fyrir Frakkland og varð heimsmeistari í Rússlandi 2018.

Ýmis félög voru orðuð við Kimpembe síðasta sumar en nú er búið að binda enda á þær sögusagnir.

Meiddur Kimpembe framlengir við PSG (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.