Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 22. janúar 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Lampard leitar að framherja - Óvíst með meiðsli Abraham
Tammy Abraham.
Tammy Abraham.
Mynd: Getty Images
Frank Lampard, stjóri Chelsea, segist vilja bæta við framherja í leikmannahóp sinn áður en félagaskiptaglugginn lokar.

„Ég get ekki sagt að við munum pottþétt fá okkur framherja en við erum að leita," sagði Lampard eftir 2-2 jafnteflið gegn Arsenal í gær.

Tammy Abraham, aðalframherji Chelsea, meiddist undir lokin í leiknum í gær en Lampard gat ekki komið frekari fréttir af meiðslum hans eftir leik.

„Ég vona að hann verði ekki frá (í nokkrar vikur) en ef svo er þá eigum við leikmenn til að takast á við það,"
Olivier Giroud gæti verið á förum frá Chelsea og því mun væntanlega mæða mikið á Michy Batshuayi ef Abraham verður frá á næstunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner