Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 22. janúar 2022 07:00
Victor Pálsson
Liðsfélagi Alfreðs hefur engan áhuga á að semja við Newcastle
Mynd: EPA
Felix Uduokhai, leikmaður Augsburg, hefur engan áhuga á að ganga í raðir Newcastle í janúarglugganum.

Uduokhai hefur verið orðaður við enska félagið undanfarið en hann er liðsfélagi Alfreðs Finnbogasonar hjá þýska félaginu.

Newcastle vill bæta við sig varnarmanni í janúar og hefur einnig elst við Diego Carlos, leikmann Sevilla.

Þeir ensku þurfa að leita annað en til Augsburg en Uduokhai hefur engan áhuga á að' færa sig um set.

„Ég hef ekki fengið neitt tilboð og ég hef alls engan áhuga," sagði Uduokhai á blaðamannafundi.

„Við erum með önnur verkefni hjá Augsburg sem við einbeitum okkur að. Þessar sögusagnir hafa engin áhrif á mig."
Athugasemdir
banner
banner