Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 22. janúar 2023 11:00
Elvar Geir Magnússon
Æfingaleikir: Afturelding, Þróttur og Árbær með stóra sigra
Andri Freyr skoraði þrennu.
Andri Freyr skoraði þrennu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þegar kalt er í veðri og stormur úti er gott að eiga góða úlpu. Undirbúningstímabilið hér á Íslandi er komið á fulla ferð og víða fara fram æfingaleikir.

Lengjudeildarliðin Þróttur og Selfoss áttust við og Þróttarar unnu 5-1 sigur. Heimamenn komust í 4-0 í fyrri hálfleik en Selfoss minnkaði muninn rétt fyrir leikhlé. Í síðari hálfleik bættu Þróttarar við einu marki.

Lengjudeildarlið Aftureldingar slátraði KV sem féll úr deildinni í fyrra en liðin mættust í Mosfellsbænum. Andri Freyr Jónasson, sem gekk aftur í raðir Aftureldingar frá Fjölni í vetur, skoraði þrennu.

Þá vann Árbær, sem er í 3. deildinni, 4-0 sigur gegn Haukum sem tefldu fram varaliði þegar liðin áttust við á föstudag. Haukar léku svo við Grindavík í gær og þar vann Grindavík sigur.

Þróttur 5 - 1 Selfoss
Mörk Þróttar: Kosty­antyn Yaros­hen­ko 2, Guðmundur Axel Hilmarsson, Sam Hewson og eitt sjálfsmark.

Afturelding 6 - 0 KV
Ásgeir Marteinsson skoraði fyrsta markið beint úr aukaspyrnu og þeir Sindri Sigurjónsson og Elmar Kári Enesson Cogic bættu báðir við marki áður en fyrri hálfleikur var úti. Í síðari hálfleik var Andri Freyr Jónasson í stuði á vinstri kantinum og skoraði þrennu.

Árbær 4 - 0 Haukar
Róbert Daði Sigurþórsson með 2
Sæmundur Óli Björnsson
Axel Örn Sæmundsson

Haukar 2 - 3 Grindavík
Staðan var 1-0 í hálfleik fyrir Hauka
Mörk Hauka: Gísli Kristjánsson (2)
Mörk Grindavíkur: Sjálfsmark Hauka, Óskar Örn Hauksson og Einar Karl Ingvarsson.


Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner