Fotbolti.net
22.01.24 - 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Á náttúrulega alls ekki að vera að spila á Íslandi"

„Á náttúrulega alls ekki að vera að spila á Íslandi"
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Birgir Steinn Styrmisson var til viðtals hér á Fótbolti.net í síðustu viku. Birgir er KR-ingur, varnarmaður sem hefur spilað fyrstu leiki KR á undirbúningstímabilinu.

Hann hefur spilað við hlið Finns Tómasar Pálmasonar. Finnur er 22 ára miðvörður sem átti nokkuð gott tímabil á síðasta tímabili. Hann var valinn efnilegasti leikmaður deildarinnar 2019 og var eftir tímabilið 2020 seldur til Norrköping. Sú dvöl gekk ekki alveg upp og sneri Finnur aftur heim í KR. Birgir var spurður út í Finn Tómas í viðtalinu.
Birgir Steinn: KR getur farið alla leið
TENGT EFNI

Birgir Steinn: KR getur farið alla leið

„Hann er frábær leikmaður og á náttúrulega alls ekki að vera spila á Íslandi. Hann er frábær leikmaður sem getur farið virkilega langt ef það er það sem hann ætlar sér," sagði Birgir.

Finnur bar fyrirliðabandið í leiknum gegn Val um síðustu helgi.

„Já, hann er það nefnilega, (mikill leiðtogi). Það er virkilega gaman og gott að spila hliðina á honum. Hann er með góða yfirsýn og mikill leiðtogi," sagði Birgir.

Birgir er sjálfur nítján ára og saman mynda hann og Finnur því mjög ungt miðvarðapar.

Birgir Steinn: KR getur farið alla leið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.