Birnir Snær í Halmstad (Staðfest)

Birnir Snær Ingason.

Mynd: Halmstad

Birnir í landsleik á dögunum.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Birnir Snær Ingason.

Mynd: Halmstad
Kantmaðurinn Birnir Snær Ingason er genginn í raðir sænska félagsins Halmstad en hann skrifar undir þriggja ára samning við félagið.

TENGT EFNI
Hélt kannski að Arnar ætlaði að láta sig heyra það en fékk í staðinn draumafréttirnar
Birnir, sem er 27 ára, kemur til Halmstad eftir að hafa besti leikmaður Bestu deildarinnar á síðasta ári. Hann var frábær í liði Víkings sem vann tvöfalt.
„Tilfinningin er frábær og ég er spenntur að byrja. Það hafa margir íslenskir leikmenn spilað með Halmstad og í sænsku úrvalsdeildinni. Ég talaði líka við liðsfélaga minn á Íslandi, Oliver Ekroth, áður en ég tók þetta skref," segir Birnir.
„Þeir sem ég hef talað hafa bara talað jákvætt um Allsvenskan og Svíþjóð. Ég hef heyrt mjög góða hluti um félagið og Halmstad almennt."
Birnir, sem spilaði sinn fyrsta A-landsleik á dögunum, ræddi við Fótbolta.net fyrir skiptin og sagði þá að það yrði erfitt að kveðja Víkinga.
„Það verður helvíti erfitt að kveðja Víking. Ferillinn minn fór eiginlega bara á flug eftir að ég fór í Víking. Ég átti samt líka geggjaðan tíma í öðrum félögum sem ég hef verið í. En að kveðja Víking verður mjög svo erfitt," sagði Birnir sem hefur núna nýjan kafla í Svíþjóð.