Saga Líf í Aftureldingu (Staðfest)

Mynd: wAfturelding

Mynd: wAfturelding

Afturelding er að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi átök í Lengjudeild kvenna og var að krækja í Sögu Líf Sigurðardóttur úr röðum Þórs/KA.
Saga Líf er fædd 1999 og á 44 leiki að baki fyrir Þór/KA í efstu deild íslenska boltans, auk þess að eiga 15 leiki fyrir yngri landslið Íslands.
„Saga er frábær viðbót við okkar hóp, hún er leikmaður sem kemur inn með mikil gæði sem og eykur breiddina okkar á mörgum stöðum vallarins. Ég veit hvað Saga mun gefa okkur í Lengjudeildinni eftir að hafa unnið með henni í Bestu deildinni í um þrjú ár fyrir norðan. Við þjálfarateymið erum í sjöunda himni yfir því að fá Sögu til félagsins,” segir Perry Mclachlan, þjálfari Aftureldingar.
Afturelding hefur fylgst með Sögu síðan hún lék gegn liðinu sumarið 2018 þegar hún var hjá Hömrunum.
Mosfellingar stefna upp í efstu deild kvenna og enduðu í fimmta sæti Lengjudeildarinnar í fyrra, með 29 stig úr 18 umferðum.