22.02.20 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Spennandi slagur í Flórens
Juve heimsækir botnliðið

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Það eru þrír leikir á dagskrá í ítalska boltanum í dag. Veislan byrjar klukkan 14:00 þegar meiðslahrjáð lið Bologna tekur á móti Udinese.
Bologna er án níu leikmanna og verður þetta því ansi þung þraut fyrir þá sem eru enn heilir. Andri Fannar Baldursson er í leikmannahópi Bologna vegna manneklu, en leikmannahópar á Ítalíu geta innihaldið allt að 25 leikmenn.
Botnlið SPAL tekur svo á móti toppliði Juventus í beinni útsendingu. Juve er með eins stigs forystu á toppinum sem stendur en Lazio er í öðru sæti og svo kemur Inter skammt undan.
Síðasti leikur dagsins er ekki af verri endanum en þar mætast tvö lið sem virðast bæði vera á uppleið. Fiorentina fær AC Milan í heimsókn en þetta eru bæði lið sem eru með góða leikmenn innanborðs.
Það eru sjö stig sem skilja liðin að í deildinni, þar sem Milan er aðeins einu stigi frá Evrópusæti á meðan Fiorentina er sex stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Leikir dagsins:
14:00 Bologna - Udinese
17:00 SPAL - Juventus (Stöð 2 Sport 2)
19:45 Fiorentina - Milan (Stöð 2 Sport 3)