Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 22. mars 2021 10:30
Magnús Már Einarsson
Fred varð fyrir kynþáttafordómum á Instagram
Mynd: Getty Images
Fred, miðjumaður Manchester United, varð fyrir kynþáttafordómum á Instagram eftir 3-1 tap liðsins gegn Leicester í enska bikarnum í gær.

Fred gerði sig sekan um slæm mistök í fyrsta marki leiksins sem Kelechi Iheanacho skoraði.

Eftir leik fékk Fred ljót skilaboð send á Instagram en nokkrir aðilar voru þar með kynþáttafordóma í hans garð.

Marcus Rashford, Anthony Martial og Axel Tuanzebe, leikmenn Manchester United, hafa allir orðið fyrir fordómum á samfélagsmiðlum undanfarnar vikur.

Manchester United hefur gagnrýnt hegðunina og sagt að um sé að ræða „huglausa hálfvita."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner