Kantmaðurinn Jordon Ibe mun fara frá Bournemouth þegar samningur hans rennur út 1. júlí.
Bournemouth keypti Ibe frá Liverpool á sextán milljónir punda árið 2016 en hann hefur ekki náð flugi með liðinu.
Ibe mun ekki einu sinni fá nokkra vikna framlengingu á samningi sínum til að klára núverandi tímabil.

Ibe gerði menn hjá Bournemouth reiða í vikunni þegar hann braut reglur á Englandi tengda kórónaveirunni með því að fara í klippingu.
Í kjölfarið birti Ibe mynd af því á samfélagsmiðlum en hann eyddi síðan færslunni eftir mikla gagnrýni.
Athugasemdir