Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 22. júní 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
KR og Valur hlutu sameiginlegan styrk frá UEFA
Mynd: KR
Mynd: Merki

Fjandliðin KR og Valur hlutu í vikunni styrk frá evrópska knattspyrnusambandinu, UEFA, vegna verkefnis sem tengist málefnum flóttafólks og hælisleitenda.


Félögin sendu inn sameiginlega umsókn og var hún ein af 11 sem hlutu styrk frá UEFA, en samtals voru umsóknirnar 23.

Verkefnið snýst um að hjálpa flóttafólki og hælisleitendum í aðlögunarferlinu í Miðborg, Hlíðum og Vesturbæ og ber heitið 'Welcome to your neighborhood' eða „Velkomin í hverfið ykkar".

Félögin munu vinna í nánu samstarfi með skólum og þjónustumiðstöðvum með það sem markmið að virkja foreldra sem flytjast hingað að með börnin sín. Þannig fái foreldrar tækifæri til að verða partur af samfélaginu og þá aukast líkurnar á þátttöku barna þeirra í fótbolta og öðrum íþróttum.

Beint af vef KSÍ:
Aðildarsamböndum UEFA býðst að sækja um styrk í sérstakan sjóð vegna knattspyrnutengdra verkefna sem tengjast flóttafólki og hælisleitendum. Með sjóðnum, sem settur var á laggirnar árið 2017, eru knattspyrnusambönd í Evrópu hvött til að starfa með knattspyrnufélögum, samtökum eða öðrum aðilum sem starfa að málefnum flóttamanna og hælisleitenda í sínum löndum og stofna til knattspyrnutengdra verkefna sem styðja við samfélagslega aðlögun þeirra.

Hægt er að sækja um styrk fyrir ný verkefni, eða verkefni sem þegar eru hafin og getur upphæð styrksins numið allt að 40.000 evrum, og að hámarki 70% af kostnaði verkefnisins. Ekki er hægt að sækja um styrk fyrir verkefni sem er lokið og hvert knattspyrnusamband / aðildarland UEFA getur sent eina umsókn. Upphæð styrks UEFA í verkefni Vals og KR er 30.000 evrur.


Athugasemdir
banner
banner
banner