Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 22. júní 2022 14:30
Elvar Geir Magnússon
Mane sendi Liverpool vinum sínum langa hjartnæma kveðju
Sadio Mane í leik með Liverpool.
Sadio Mane í leik með Liverpool.
Mynd: Getty Images
Sadio Mane var í dag kynntur sem nýr leikmaður Bayern München.

Mane sendi liðsfélögum sínum hjá Liverpool langa kveðju og segir að þeir hafi verið sorgmæddir.

„Þetta er tilfinningaríkt, bæði hjá þeim og mér. En þannig er lífið," segir Senegalinn sem vann sex stóra titla með Liverpool, þar á meðal úrvalsdeildina og Meistaradeildina.

„Það er skrítin tilfinning að vera ekki lengur leikmaður Liverpool. Ég átti ótrúlega góðan tíma hjá félaginu og naut þess að æfa og spila, sérstaklega fyrir framan stuðningsmennina á Anfield."

„Ég á enn hús í Liverpool og mun klárlega snúa aftur. Ég myndi elska það að snúa aftur á Anfield og hitta stuðningsmennina. Á eftir þeim þá verð ég stuðningsmaður Liverpool númer eitt!"
Athugasemdir
banner
banner
banner