Fotbolti.net
22.06.26 - 21:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deild kvenna: Birna með þrennu í sigri Stjörnunnar

Besta deild kvenna: Birna með þrennu í sigri Stjörnunnar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Stjarnan 3 - 0 Fram
1-0 Birna Jóhannsdóttir ('38 )
2-0 Birna Jóhannsdóttir ('61 )
3-0 Birna Jóhannsdóttir ('74 )
Lestu um leikinn
Birna Jóhannsdóttir fór hamförum þegar Stjarnan vann Fram í Bestu deild kvenna í kvöld.

Taylor Marie Hamlett var nálægt því að koma Fram yfir snemma leiks en skaut rétt framhjá.

Birna fékk boltann og var alein inn á teig Fram á 38. mínútu og kom liðinu yfir. Hún skoraði síðan sitt annað mark eftir klukkutíma leik eftir sendingu frá Andreu Mist Pálsdóttur.

Hún innsiglaði síðan þrennuna og sigur Stjörnunnar þegar hún var rétt kona á réttum stað og hirti frákastið.

Stjarnan er í 3. sæti með 17 stig en Fram er á botninum með fjögur stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1FH10+1623
2Breiðablik10+1321
3Stjarnan10+818
4ÍBV10-117
5Þróttur R.10-213
6Grindavík/Njarðvík10-412
7Valur10-310
8Víkingur R.10-810
9Þór/KA10-59
10Fram10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.