Fotbolti.net
22.07.18 - 20:18
Kristófer Jónsson

Rúnar Páll: Þýðir ekkert að vera í einhverju volæði

Auglýsing
Rúnar Páll var svekttur í leikslok

Rúnar Páll var svekttur í leikslok

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var að vonum svekktur með 1-0 tap sinna manna gegn KR á Alvogenvellinum í dag.

<i>„Þetta eru aðalega bara vonbrigði. Við fáum á okkur mark úr aukaspyrnu sem að var bara grín. Mér fannst við vera svolítið á hælunum í fyrri hálfleik en við komum okkur inní leikinn og þetta er einstefna í seinni hálfleik.\"</i> sagði Rúnar Páll eftir leik.
Leikmannamarkaðurinn á Íslandi er opinn þessa stundina en Rúnar Páll býst ekki við neinum breytingum á Stjörnuliðinu.

„Við verðum bara að meta það ef að það kemur eitthvað upp en eins og staðan er núna er ekkert í gangi.\"

Stjörnumenn falla niður í annað sætið eftir tapið og eru þremur stigum á eftir Val. Næsti leikur liðsins er næstkomandi fimmtudag gegn danska stórliðinu FCK og svo á sunnudaginn fara þeir í heimsókn í Víkina.

„Mér lýst bara vel á framhaldið. Þessi leikur er búinn og við breytum honum ekki. Næsti deildarleikur er á sunnudaginn og við verðum bara að halda áfram. Það þýðir ekkert að vera í einhverju volæði.\" sagði Rúnar Páll að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.