„Fram að þessu öðru gula spjaldi hjá Jóntan þá erum við að mínu mati betri í leiknum. Við vorum með svör við öllu sem þeir voru að gera þannig mér fannst þetta vera mjög ósanngjarnt í rauninni, sagði Jóhannes Guðlaugsson," þjálfari ÍR, eftir 3-1 tap gegn Haukum á Ásvöllum fyrr í kvöld.
ÍR komst yfir í leiknum í dag með marki frá Ísak Óla Helgasyni. Haukarnir svöruðu þó með jöfnunarmarki og stuttu síðar fauk Jónatan Hróbjartsson af velli með rautt spjald. Manni færri var þetta erfitt fyrir gestina en tókst þeim þó að hanga vel og lengi inn í leiknum. Jóhannes var sáttur með það.

„Menn voru alveg vel beittir og við áttum alveg tækifæri til að skora en svo kemur í lokin eitt mark þar sem við erum komnir framar á völlinn og erum að reyna að ná þessu (að jafna) þó við séum einum færri. Mér fannst við jafnvel vera betri á þeim kafla."
Eins og fyrr sagði þá fékk Jónatan rautt spjald í kvöld. Jóhannes var ekki mjög sáttur með dómara kvöldins.
„Það hefði ekkert verið að því að gefa gult spjald í þessari stöðu (þegar Jónatan fékk seinna gula) en hann var búinn að gefa okkur þrjú að ég held en Haukum ekki neitt. Það var alveg jafn mikið tilefni til að gefa Haukum spjöld í leiknum og mér fannst engin heil brú í því"
Nánar er rætt við Jóhannes í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir