Fotbolti.net
22.07.26 - 21:23
Brynjar Ingi Erluson

Arsenal horfir til tveggja eftir meiðsli Saliba

John Stones er á blaði hjá Arsenal

John Stones er á blaði hjá Arsenal

Canon

Mynd: EPA

Arsenal ætlar að bæta við sig miðverði í sumar, sérstaklega eftir að félagið staðfesti að William Saliba yrði frá keppni um lengri tíma vegna meiðsla.
Gríðarlegt áfall fyrir Arsenal
TENGT EFNI

Gríðarlegt áfall fyrir Arsenal

Saliba sleppur við að gangast undir aðgerð vegna bakmeiðslanna en verður líklega frá keppni í þrjá til fjóra mánuði.

Þetta er mikið áfall fyrir Arsenal, sem þarf nú að bregðast við og sækja liðsauka á leikmannamarkaðinn.

Athletic segir tvo enska landsliðsmenn koma til greina hjá félaginu, þá Ezri Konsa og John Stones.

Stones er 32 ára og án félags eftir að samningur hans við Manchester City rann út um síðustu mánaðamót. Hann gæti reynst hentug lausn fyrir Arsenal en hefur glímt töluvert við meiðsli undanfarin ár.

Stones þekkir Mikel Arteta, stjóra Arsenal, vel eftir að hafa starfað með honum hjá Manchester City í þrjú ár.

Konsa er 28 ára og hefur verið lykilmaður hjá Aston Villa undanfarin ár. Arsenal hefur rætt við Villa um miðvörðinn en talsvert ber enn á milli félaganna í verðmati.

Tæpur mánuður er þar til fyrsta umferð ensku úrvalsdeildarinnar fer fram og þarf Arsenal því að hafa hraðar hendur við að styrkja varnarlínuna. Fyrsti leikur liðsins er gegn nýliðum Coventry City.
Ezri Konsa kemur til greina

Ezri Konsa kemur til greina

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.