22.07.26 - 21:13
Brynjar Ingi Erluson

Mbappe tilkynnir Perez að Olise sé klár

Verða Michael Olise og Kylian Mbappe liðsfélagar hjá Real Madrid?

Mynd: EPA

Franski landsliðsfyrirliðinn Kylian Mbappe hefur tjáð Florentino Perez, forseta Real Madrid, að honum hafi tekist að sannfæra Michael Olise um að ganga í raðir félagsins frá Bayern München í sumar. BILD greinir frá.
Olise hefur átt tvö stórkostleg tímabil með Bayern München og var einnig einn besti leikmaður heimsmeistaramótsins, þar sem hann gaf sjö stoðsendingar.
L'Equipe og BILD hafa fullyrt að Olise hafi tilkynnt liðsfélögum sínum að hann vilji ganga til liðs við Real Madrid í sumar. Sky segir hins vegar að hann vilji vera áfram hjá Bayern og skrifa undir nýjan samning.
Miðað við þessar misvísandi fréttir gæti sagan orðið langdregin. BILD bætir nú olíu á eldinn og fullyrðir að Mbappe, liðsfélagi Olise í franska landsliðinu, hafi tjáð Perez, forseta Real Madrid, að sér hafi tekist að sannfæra Olise um að koma til félagsins.
Mbappe er sagður leggja hart að Real Madrid að kaupa Olise í sumarglugganum. Olise telur sjálfur að hann eigi meiri möguleika á að vinna Meistaradeildina með Real Madrid en Bayern München.
Olise er 24 ára og ólst upp á Englandi en ákvað ungur að spila fyrir Frakkland. Hann lék með yngri landsliðum þjóðarinnar áður en hann þreytti frumraun sína með A-landsliðinu fyrir tveimur árum.
Hann kom að 53 mörkum í öllum keppnum með Bayern á síðasta tímabili og var valinn leikmaður ársins í þýsku deildinni.