Sjeik Jassim verður eigandi Manchester United í október


Mynd: Jassim Bin Hamad Al Thani


Mynd: Jassim Bin Hamad Al Thani
Það lítur út fyrir að nýjir eigendur muni taka við stjórnartaumunum af Glazer fjölskyldunni hjá Manchester United á næstunni.
Sjeik Jassim bin Hamad al-Thani frá Katar og Bretinn Jim Ratcliffe hafa verið í stöðugum viðræðum við Glazer fjölskylduna í tæpt ár en The Sun greinir frá því að viðræðunum fari að ljúka.
Samkvæmt heimildum The Sun mun Sjeik Jassim verða nýr eigandi félagsins um miðjan október.
Sjeik Jassim bauð sex milljarða punda í félagið og nú virðist þessu langa söluferli virðist vera að ljúka.



