Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   lau 22. september 2018 17:14
Benedikt Jónsson
Jón Karls um fall Hattar: Hundfúlir með það
Jón var á sínum yngri árum leikmaður Hattar. Hér má sjá hann í leik gegn Aftureldingu einmitt.
Jón var á sínum yngri árum leikmaður Hattar. Hér má sjá hann í leik gegn Aftureldingu einmitt.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
„Fyrri hálfleikurinn var fínn, við komumst yfir og skoruðum gott mark.Heilt yfir fannst mér við ekki síðri aðilinn í fyrri hálfleik en svo var þetta erfitt í seinni hálfleik," sagði Jón Karlsson bráðabirgðaþjálfari Hattar við Fótbolta.net eftir 1-3 tap heima gegn Aftureldingu í lokaumferð 2. deildar karla.

Lestu um leikinn: Höttur 1 -  3 Afturelding

„Í seinni hálfleik var þetta erfitt, þeir tóku yfir leikinn. Eftir að þeir jafna og komast í 1-2 verður þetta erfitt og 1-3 var þetta farið. Tap sendi okkur í 3. deild og við erum hundfúlir með það."

Jón tók við liðinu þegar 4 leikir voru eftir og þó hann hafi sótt stig dugði það ekki til að bjarga sætinu.

„Nei, það dugði ekki til og 7 stig af fyrstu 9 var fínt. Við vorum í baráttunni og vissum að ef við hefðum unnið í dag þá hefðum við verið uppi og ekki þurft að treysta á neitt annað. Það tókst því miður ekki," sagði Jón sem að lokum bætti við að hann vissi ekki hvort hann verði áfram með liðið.
Athugasemdir
banner
banner