Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 22. september 2020 16:20
Elvar Geir Magnússon
Balotelli í viðræðum við Genoa
Mynd: Getty Images
La Gazzetta dello Sport segir að Genoa sé í viðræðum við Mario Balotelli og ætli að bjóða honum eins árs samning.

Sagt er að umboðsmaðurinn Mino Raiola hafi boðið Genoa að fá þennan þrítuga sóknarmann og félagið hafi verið með efasemdir til að byrja með.

Nú standa yfir viðræður um laun en Balotelli er fáanlegur á frjálsri sölu eftir aðeins eitt tímabil hjá Brescia. Hann lenti í deilum við æðstu menn félagsins.

Balotelli skoraði fimm mörk í nítján leikjum fyrir Brescia í ítölslu A-deildinni.

Genoa hafnaði í 17. sæti ítölsku A-deildarinnar á síðasta tímabili og hélt því sæti sínu í efstu deild.

Ferill Balotelli
2006–2007 Lumezzane
2007–2010 Inter Milan
2010–2013 Manchester City
2013–2014 AC Milan
2014–2016 Liverpool
2015–2016 AC Milan (lán)
2016–2019 Nice
2019 Marseille
2019–2020 Brescia
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner