Fotbolti.net
26.09.26 - 15:06
Brynjar Ingi Erluson

Þriðji sigurinn í röð hjá Emelíu - Ída Marín lagði aftur upp í sigri

Ída Marín lagði upp í sigri Hammarby

Ída Marín lagði upp í sigri Hammarby

Canon

Mynd: Hammarby

Kvennaboltinn
Emelía Óskarsdóttir og stöllur hennar í Köge unnu sinn þriðja deildarleik í röð og sitja á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar með fjögurra stiga forystu. Ída Marín Hermannsdóttir lagði þá upp mark annan leikinn í röð fyrir Hammarby.
Emelía var í byrjunarliði Köge sem vann 4-1 sigur á Kolding í dag en hún lék í um klukkutíma.

Köge er á miklu flugi, hefur unnið þrjá leiki í röð og ætlar sér augljóslega að gera sterka atlögu að því að verja titilinn.

Arna Eiríksdóttir og Fanney Inga Birkisdóttir léku allan leikinn með Vålerenga sem vann sannfærandi 4-0 sigur á Molde. Sóley Edda Ingadóttir sat allan tímann á bekknum hjá Molde. Vålerenga er í 4. sæti með 34 stig en Molde í því sjöunda með 18 stig.

Diljá Ýr Zomers kom inn af bekknum þegar tuttugu mínútur voru eftir í 1-0 sigri Brann á Stabæk. Brann er á toppnum með 47 stig eftir sautján umferðir.

Alexandra Jóhannsdóttir var í byrjunarliði Kristianstad sem tapaði 3-1 fyrir Vittsjö í sænsku úrvalsdeildinni. Elísa Lana Sigurjónsdóttir og Guðný Árnadóttir komu inn af bekknum hjá Kristianstad sem er í 5. sæti með 29 stig.

Ásdís Karen Halldórsdóttir lék allan leikinn með AIK sem vann öruggan 3-0 sigur á Växjö. AIK er í 4. sæti með 34 stig.

Ída Marín lagði upp fyrsta mark Hammarby í 3-0 sigri á Eskilstuna.

Framherjinn heldur áfram draumabyrjun sinni hjá félaginu og hefur komið að marki í öllum leikjum sínum til þessa. Hún skoraði þrennu í fyrsta leiknum, í bikarnum, fylgdi því eftir með sínu fyrsta deildarmarki í fyrsta deildarleiknum og lagði síðan upp mark í sigri á Rangers í Evrópubikarnum á dögunum.

Hún og Guðrún Arnardóttir voru í byrjunarliði Hammarby á meðan Heiða Ragney Viðarsdóttir byrjaði hjá Eskilstuna. Hammarby er í 2. sæti með 50 stig, þremur stigum á eftir Häcken, en Eskilstuna er í 7. sæti með 27 stig.

María Catharina Ólafsdóttir Gros byrjaði hjá Djurgården sem vann langþráðan 4-1 sigur á Uppsala. Djurgården er í 10. sæti með 21 stig en Uppsala situr á botninum.

Eyrún Embla Hjartardóttir byrjaði hjá varaliði Häcken sem gerði 2-2 jafntefli við Jitex í B-deildinni. Varalið Häcken er í neðsta sæti með átta stig.

Andrea Rut Bjarnadóttir og Vigdís Lilja Kristjánsdóttir voru báðar í byrjunarliði Anderlecht sem vann 2-0 sigur á RAAL í belgísku úrvalsdeildinni. Anderlecht er á toppnum með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir.
Emelía er á toppnum í dönsku úrvalsdeildinni

Emelía er á toppnum í dönsku úrvalsdeildinni

Canon

Mynd: HB Köge

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.