lau 22.okt 2022 17:35 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|
Úrvalslið ársins í Bestu deildinni 2022
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net var opinberað val á liði ársins í Bestu deild karla 2022. Þetta er ellefta árið í röð sem Fótbolti.net velur úrvalslið tímabilsins í efstu deild karla.
Anton Ari Einarsson - Breiðablik
Eins og margir liðsfélagar hans í Íslandsmeistaraliði Breiðabliks þá sýndi Anton gríðarlegan stöðugleika í gegnum allt mótið. Spilaði af gríðarlegu öryggi og engar efasemdarraddir heyrast lengur í Kópavoginum. Anton var einnig í liði ársins 2017, þá sem markvörður Vals.
Höskuldur Gunnlaugsson - Breiðablik
Annað árið í röð er Höskuldur hægri bakvörður í liði ársins. Fyrirliðinn í Kópavoginum lék frábærlega frá fyrstu umferð og er flottur kyndilberi liðsins.
Damir Muminovic - Breiðablik
Í liði ársins 2015, 2016, 2018, 2021 og nú 2022. Það segir sitt um hversu öflugur hann hefur verið og hversu lengi. Einfaldlega einn besti miðvörður sem spilað hefur í efstu deild á Íslandi.
Ívar Örn Árnason - KA
Þessi 26 ára miðvöður festi sig rækilega í sessi sem vinstri hafsent í sterkri varnarlínu KA. Frammistaða hans við hlið Dusan Brkovic í hjarta varnarinnar var einn helsti lykillinn að því að KA nældi sér í Evrópusæti.
Logi Tómasson - Víkingur
Steig gríðarlega upp á þessu tímabili og fann 'fókusinn' og þar með stöðugleikann. Lesendur Fótbolta.net völdu Loga sem besta varnarmann deildarinnar í skoðanakönnun í september.
Rodri - KA
Þessi 33 ára Spánverji er feikilega mikilvægur í liði KA. Hann einn sá besti af miðjumönnum deildarinnar í því að komast inn í sendingar og fleira. Hann er einhvern veginn alls staðar og er með gríðarlega góðan leikskilning og staðsetningar.
Dagur Dan Þórhallsson - Breiðablik
Svissneski vasahnífurinn í Breiðabliksliðinu. Hefur blómstrað í Breiðabliksliðinu í sumar og verið einn besti leikmaður deildarinnar. Hefur leyst hinar ýmsu stöður og komið sínum nánustu meira að segja á óvart með fjölhæfni sinni.
Júlíus Magnússon - Víkingur
Tók við fyrirliðabandinu hjá Víkingi með glæsibrag. Búinn að sanna sig sem einn besti miðjumaður deildarinnar og hefur bara orðið betri með aukinni ábyrgð.
Ísak Snær Þorvaldsson - Breiðablik
Ein allra helsta stjarna sumarsins og var hreinlega óstöðvandi langt fram eftir móti. Þjálfarar Breiðabliks náðu því besta út úr Ísaki sem var settur framar á völlinn en hann er vanur. 18 mörk og tíu stoðsendingar í öllum keppnum í sumar og er búinn að semja við Rosenborg í Noregi.
Nökkvi Þeyr Þórisson - KA
Talandi um að vera óstöðvandi. Sumarið litaðist af óvæntum stjörnum og Nökkvi Þeyr Þórisson er svo sannarlega ein af þeim. Sannaði það að aukaæfingin skapar meistarann og var seldur til Beerschot í Belgíu eftir að hafa skorað 17 mörk í Bestu deildinni.
Guðmundur Magnússon - Fram
Var ákveðinn í að láta til sín taka í sumar og vinna hans síðasta vetur skilaði sér. Ein helsta ástæða þess að Fram reif sig úr fallbaráttupakkanum og kom sér í þægileg mál. 17 mörk frá þessum svakalega öfluga sóknarmanni.
Varamannabekkur:
Frederik Schram - Valur
Dusan Brkovic - KA
Viktor Örn Margeirsson - Breiðablik
Pablo Punyed - Víkingur
Kristall Máni Ingason - Víkingur
Jason Daði Svanþórsson - Breiðablik
Emil Atlason - Stjarnan
Sjá einnig:
Lið ársins 2021
Lið ársins 2020
Lið ársins 2019
Lið ársins 2018
Lið ársins 2017
Lið ársins 2016
Lið ársins 2015
Lið ársins 2014
Lið ársins 2013
Lið ársins 2012
Lið ársins 2011